Siggz

hef ekki hugmynd

07.01.2007 20:46:00 / sigga

ola

jæja fólk þá er mikið búiði að gerast síðan síðast :) áramótin heppnuðust bara vel, þar sem fannar og binni héldu party í valfelli :) mjög gaman þar, og slatti af fólki, þó minnti þetta svolítið mikið á busaball á akranesi því það var mikið af ofurölvun þarna, en það var bara hægt að hlægja af því..... elva og andri eignuðust lítinn strák 3 jan, ég og lóa kíktum á 4 og hann er ótrúlega myndalegur strákur :) minnir svolítið á pabba sinn og með alveg kolsvart og mikið hár, alveg yndislegur í alla staði :) við stelpurnar vorum að keppa við kr síðasta föstudag og við töpuðum þeim leik, vá þetta var ótrúlega erftt greinilegt að maður þarf að æfa allt jólafríið, en svo er næsti leikur hjá okkur á næsta sunnudag á móti snæfell á útivelli. skallagrímur vann keflavík í gær í hörkuleik, ég var alveg að fara á taugum þarna undir lokinn, en við náðum að vinna hann með 2 stigum minnir mig, en það er hægt að horfa á hann á ruv.is andri snær var 11 ára 6 jan :) vá hvað þetta er fljótt að líða, litli frændi bara orðinn stór :) skellti mér í sund áðan með kristínu og valda og það er mjög langt ´siðan maður hefur heimsótt sundlaugina, og ég hef varla getað haldið augunum opnum.. fékk skemmtilegt símtal frá dagrúnu áðan þar sem hún spurði mig hvort ég vildi koma með henni að renna, og var ég alveg til í það en það var spurning hvar við áttum að geta reddað okkur slöngu, og ætlar hún að fara í það eftir helgi að redda slöngu og þá munum við fara að renna :) alltaf gaman að gera einhvað með dagrúnu, já svo fórum við saman að sjá happy feet í síðustu viku og þessi mynd er algjör snilld, v´´a hvað það eru góð lög í henni og flottir dansar og mjög fyndin :) ég allavega náði að hlægja mjög mikið... :) en já svo fórum við stelpurnar í liðinu nema guðrún selma (þar sem hún var að fara að eyða rómantískri helgi með honum ölla sínum í bústað :) ) í bíó eftir leikinn á móti kr og fórum að sjá employe of the month, og ég var illa svikinn... ég náði þó að hlæja nokkrum sinnum en það voru ekki mörg tilfelli, annas var þetta bara nokkurns konar bull :( .....

jæja gísli er kominn og ætlum við að fara að leigja okkur einhvað á skjánum..

farið vel með ykkur hilsen

Dagrún skrifaði
Ég er alveg á því að redda slöngunni hand okkur. Vonandi getum við farið þar næstu helgi, þá verð ég heima! og það væri líka fínt að hafa snjó annars er mér alveg sama :ö) Er að spá hvort ég eigi ekki bara að fara aftur á Happy feet, besta teiknimynd! Held að fólki hafi alveg fundist mega fyndið að hafa þig í bío, gat örugglega alveg hlegið með þér:ö)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.