Siggz

hef ekki hugmynd

18.01.2007 11:01:54 / sigga

búin að skipta

hæhæ

heyriði ég er komin með nýja síðu og hún er www.siggadora.bloggar.is ég skipti því það er miklu auðveldara að setja inn myndir á hina síðuna, og sýnist hún vera auðveldari bara í alla staði en það kemur bara í ljós.

heyrumst þá hinum megin :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 19:23:14 / sigga

loksins ákveðin hvað ég ætla að gera

jæja fólk þá er ég búin að ákveða hvað ég ætla að gera og allt komið á hreint. semsagt á næsta föstudag liggur leiðin til köben þar sem ég ætla að njóta samvista með systkinum mínum og fjölskyldum þeirra og svo móður minnar í tvo daga og svo liggur leiðin til frakklands, nánara sagt montpellier :) og þar ætla ég að vera í 4 mánuði..... :) semsagt að vera í 8 vikur í málaskóla og svo 8 vikur að vinna á hóteli :) þetta er finnst mér voðalega spennandi.... og ætla ég að vera voðalega dugleg að skrifa hér inn einhvað sniðugt :)  en það er held ég allt saman tilbúið bara eftir að ganga frá herberginu mínu (sem er heilmikið verk :( ) og svo pakka og þrífa fötin sem ég ætla að taka með mér :)   en jæja það er best að halda áfram... heyrumst bye bye


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 20:46:00 / sigga

ola

jæja fólk þá er mikið búiði að gerast síðan síðast :) áramótin heppnuðust bara vel, þar sem fannar og binni héldu party í valfelli :) mjög gaman þar, og slatti af fólki, þó minnti þetta svolítið mikið á busaball á akranesi því það var mikið af ofurölvun þarna, en það var bara hægt að hlægja af því..... elva og andri eignuðust lítinn strák 3 jan, ég og lóa kíktum á 4 og hann er ótrúlega myndalegur strákur :) minnir svolítið á pabba sinn og með alveg kolsvart og mikið hár, alveg yndislegur í alla staði :) við stelpurnar vorum að keppa við kr síðasta föstudag og við töpuðum þeim leik, vá þetta var ótrúlega erftt greinilegt að maður þarf að æfa allt jólafríið, en svo er næsti leikur hjá okkur á næsta sunnudag á móti snæfell á útivelli. skallagrímur vann keflavík í gær í hörkuleik, ég var alveg að fara á taugum þarna undir lokinn, en við náðum að vinna hann með 2 stigum minnir mig, en það er hægt að horfa á hann á ruv.is andri snær var 11 ára 6 jan :) vá hvað þetta er fljótt að líða, litli frændi bara orðinn stór :) skellti mér í sund áðan með kristínu og valda og það er mjög langt ´siðan maður hefur heimsótt sundlaugina, og ég hef varla getað haldið augunum opnum.. fékk skemmtilegt símtal frá dagrúnu áðan þar sem hún spurði mig hvort ég vildi koma með henni að renna, og var ég alveg til í það en það var spurning hvar við áttum að geta reddað okkur slöngu, og ætlar hún að fara í það eftir helgi að redda slöngu og þá munum við fara að renna :) alltaf gaman að gera einhvað með dagrúnu, já svo fórum við saman að sjá happy feet í síðustu viku og þessi mynd er algjör snilld, v´´a hvað það eru góð lög í henni og flottir dansar og mjög fyndin :) ég allavega náði að hlægja mjög mikið... :) en já svo fórum við stelpurnar í liðinu nema guðrún selma (þar sem hún var að fara að eyða rómantískri helgi með honum ölla sínum í bústað :) ) í bíó eftir leikinn á móti kr og fórum að sjá employe of the month, og ég var illa svikinn... ég náði þó að hlæja nokkrum sinnum en það voru ekki mörg tilfelli, annas var þetta bara nokkurns konar bull :( .....

jæja gísli er kominn og ætlum við að fara að leigja okkur einhvað á skjánum..

farið vel með ykkur hilsen


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 22:31:58 / sigga

punktafærsla :)

  • kjellan er útskrifuð :)
  • mjög gaman þann dag, var bara kósí hérna heima í faðmi famillíuna:)
  • partý hjá gunnari og bjarna, farið snemma  heim vegna slæms veðurs, en var orðin soldið skrautleg minnir mig á heimleiðinni :)
  • jólin gengin í garð, ótrúlega kósí bara.. :) gott að borða og fullt af pökkum :)
  • ekkert ball á venus á mrgn, þess vegna er partý hér í bgn í góðum sal, þeir sem hafa áhuga að koma hafa samband við fannar, þetta verður eflaust mjög skemmtilegt.
  • var að koma frá rvk með dagrunu, fórum á mörgæsamyndina :) hún er æði.. :) við hlógum og hlógum :)
  • ´.....
  • ...
  • ...
  • fólk hvað á ég að gera eftir áramót ???? :( er í smá vandræðum hérna ...

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 14:33:45 / sigga

Ó HAPPY DAY, O HAPPY DAY...............

ÉG NÁÐI ÖLLUM PRÓFUNUM, ÞANNIG ÉG ER AÐ FARA AÐ ÚTSKRIFAST Á NÆSTA FIMMTUDAG KLUKKAN 14,00

   ÆÐISLEGUR DAGUR

p.s minni á leikinn í kvöld, skallagrímur-snæfell og

kvennaboltinn skallagrímur-þór akureyri á sunnudaginn klukkan 13,00


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 12:04:18 / sigga

stutt færsla

jæja fólk ég kem með góða færslu eftir prófin.....

vill bara minna á að mímir er opinn í kvöld frá 20-23

það meiga ALLIR KOMA.. konur og karlar, börn, unglingar, fullorðnir.........

ætlum að bjóða upp á heitt kakó og smákökur (auðvitað í boði geira bakarís)

halli og ingibjörn eru með þátt klukkan 10 á fm óðal 101,3

mætum öll í mími reynum að gera smá jólastemningu, fyrst flest allir eru búnir í prófum og svona :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 20:18:20 / sigga

DIMMISJóN

Jæja dimmisjónið var í gær og verð ég að segja að ég bara skemmti mér rosalega vel, þetta var ótrúlega gaman. Við vöknuðum um 4 og gerðum okkur klár, vorum komin út á skaga klukkan 5, til að fara í partý til jón steinars, það byrjuðu þá flest allir að drekka, en ég ákvað að bíða aðeins, fórum upp í skóla klukkan 6 og hittum restina af krökkunum, (og þá byrjaði ég að drekka ) gerðum okkur klár og svo var komið að því að vekja vistina. Sölva herbergi var fyrst þannig það stukku allir þangað inn og greyið honum brá svo mikið  mjög fyndið. Síðan var bara komið að því að taka nokkur rennsli af “sýninguni” og fá sér öllara og síkó.. en um 10 þá var kaffi með kennurunum, eða við fengum afgangana  næst var farið í stofuheimsóknir og þar sátum við í nokkrum tímum, það var reyndar ekki margar stofur um að velja en þetta var mjög gaman. Um 11 fórum við á okkar staði fyrir dimmisjónið, við biðum inn i eldhúsi meðan krakkarnir settust niður.. en sýningin heppnaðist bara mjög vel, allavega var það sem skipti mestu máli að við skemmtum okkur vel og tel ég það hafa heppnast.. þetta var rosalega gaman. En hálf eitt þá kom rúta á akranes og ná í okkur og ferðinni var haldið til reykjavíkur þar sem við fórum í keilu en reyndar þurftum við að hanga þar í klukkutíma- einn og hálfan þangað til að við fengum að spila þannig stuðið fór aðeins niður en svo þegar við byrjuðum að spila keilu þá fóru allir í stuðið aftur, og þetta var algjör snilld, held að ég hafi sett niður 6 fellur í fyrsta  BTW ÞÁ NÁÐI ÉG 170 TOTAL SKOR OG VAR HÆÐST AF ÖLLUM KRÖKKUNUM SEM VORU Í FERÐINNI, PÆLIÐI Í ÞVÍ  kjellan er mjög ánægð með það.. reyndar voru einhverjir sem voru sárir en hvað með það ÉG VANN ALLA  oki núna er ég hætt..... en svo fórum við í kringluna til að fara í ríkið og hvern haldið þið að við höfum séð. TOBY ÚR ROCK STAR  við sem vorum þarna fengum eiginhandaráritun og mynd og allt  frábært  reyndar var gungun alveg að fara með það þarna.. hann var spurjandi litlar 14 ára stelpur hvort þær væru til í að fara í sleik hummm ekki gott, (og hann sko með myndavelina) þá sko langaði mig að hverfa hehe.... Næst fórum við á pizza hut þar sem við fengum pizzu  og ís... en versta var að það mátti varla segja orð, það var bara verið að kvarta undan okkur og sonna  þannig við reyndum bara að hafa þetta snöggt stopp..... eftir matinn fórum við út á skaga í partýið.. það byrjaði ekkert svo vel, ég var alveg að leka niður út þreytu og mjög leiðinleg tónlist.. en svo kom einhver með disk og þá komst kjellan í stuð aftur.. einhverjir kennarar komu á svæðið, og það var mikið drukkuð og skemmtileg heit, svo reddaði birkir strákum til að koma og spila á gítar, og það var rosalega gaman þegar þeir komu, þá var sko sungið..  og birkir þambandi vodka í appelsínusafa og steinunn kennari að passa upp á hann  Ferðinni var næst haldið á ballið, djö var gaman allavega fyrri partinn af því.. langt síðan ég hef skemmt mér svona vel á balli á akranesi.... ég nenni ekki að segja frá því ýtarlega, en var margt sem gerðist sem er betra að segja ekki frá ;)

Einnig voru allir strákarnir málaðir um morguninn og hægt er að segja að það hafi ekki farið öllum hehe ;) en gísli minn þú varst alveg ótrúlega flottur :) (ef að þið fattið þetta ekki þá er smá vottur á kaldhæðni í þessu hjá mér) en ég var samt smá sátt, því þá var það ekki bara ég sem vaknaði með málingu út um allt í morgun heldur var hann líka þannig :)

  • Jón steinar var má segja fyllsti maðurinn í ferðinni og var hann mikið aðhlátursefni ;) og áttum við margar góðar samræður úti í síkó :) hehe
  • Gunnar smári ældi í rútunni hehe ;)
  • Unnar lenti í “smá vandræðum”
  • Arnar þór, hummm, tungan út hægri vinstri :) 
  • Katrín KENNARASLEIKJA hehe,og má segja mjög drukkin .
  • Högni átti mjög góð spor á dansgólfinu:)
  • Ninna í klósettleik :)
  • GunGun viljiði fara í sleik :) og margt fleira..
  • unnar og ég áttum "góðar samræður" alveg frá rvk til akranes og endaði með því að hann hrækti á mig.... :) sem betur fer endaði það á hornunum mínum... ÉG MUN HEFNA MÍN UNNAR :)
  • svo voru náttla miklu fleiri klassa punktar, bara nenni ekki að telja upp hérna meira.
  • Bara klassa ferð í alla staði.. ;) vona bara að við munum endurtaka þetta einhverntíman aftur því þetta eru alveg frábærir krakkar og gaman að kynnast þeim, verst það hafi þurft að taka 4 ár til þess... betra seint en aldrei :)

 En mar er ótrúlega hress í dag, ég bjóst við að vera alveg ónýt, en ég hef verið mun verri áður..

Myndirnar eru inn á myndirnar mínar.. er að setja þær inn núna.. en svo vil ég að þið gerið komment,, vil vita hver er að kíkja á mig ;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 14:56:02 / sigga

sælir/ar

Jæja fólk, margt og mikið búið að gerast síðan síðustu færslu, það er nóg að gera í skólanum enn það er spurning hvað maður leggur sig fram í þetta. Og verð ég að segja að það hefur verið frekar dapurt hvað ég hef gert mikið.. ég er bara ekki alveg að koma því fyrir í hausnum mínum að maður er orðinn gamall og er að fara að útskrifast um jólin, það eru búinar að vera tvær eða þrjár æfingar í dimmisjón, þetta er mjög gaman og hlakkar mig mikil til á næsta föstudag J þá verður sko tekið á því.

Sóley systir er flutt inn í nýju íbúðina og verð ég að segja að þetta er erfiðara en ég bjóst við, L það er mjög skrítið að hafa ekki isabellu hérna til að fíflast í. L en þá kemur upp á móti að maður er bara 2 min að keyra þangað, þannig við eigum pottþett eftir að vera dugleg að fara í heimsókn, en íbúðin er bara mjög flott og þó á slatti eftir að fara inn í hana held ég ;)

Rakel, aron, patrekur komu á fimmtdaginn, ótúlega skemmtilegt að fá þau. J en þau fara aftur á þri L. Og átti gærdagurinn bara að vera kósíkvöld með frændum mínum J sóley var líka að halda mömmupartý í gær, og ætlaði rakel í það, en ég var búin að ákveða að kíkja smá þangað. En eftir æfingu í gær þegar ég var að labba út úr íþróttahúsinu þá komu inga tinna og lóa á móti mér og sögðust ætla að taka mig í óvissuferð.. hummm það var reyndar mjög erfitt að tala mig til, en jæja ég ákvað að segja já.. og rættist bara fínt úr því kvöldi, það reyndar klikkaði einhvað með þessa óvissuferð og þess vegna enduðum við bara heima hjá ragga á bifröst í kojufyllirí, og kíktum svo einnig líka á pöbbinn, en þetta var mjög skemmtilegt kvöld. Og það endaði með að halli yndi kom og sótti mig og lóu um 4 L svoítið seint, en held að hann hafi haft bara gaman af því..

Sóley átti afmæli 23 :) jeyyyy

pabbi átti afmæli 24 :) jeyyyy

einnig var 1 ár síðan berti minn dó 24 :(

ótrúlegt hvað þetta tekur langan tíma að jafna sig á svona missi. ég og patrekur fórum i gær og kveiktum á kerti hjá honum, og ég hef sjaldan verið í eins erfiðri aðstæðu.. en hans er sárt saknað.. hann var yndislegur hundur. :)

 

En jæja það er spurning hvort maður fari ekki að halda áfram að læra, FRANSKAN ROKKAR J = L 

p.s gleymi að segja, það er leikur hjá okkur í Rimaskóla á mánudaginn klukkan 20,30 á móti fjölni.. mæli með því að fólk mæti því þetta verður alveg hörkuleikur :)

Hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 16:25:25 / sigga

unnum í gær :)

  • unnum ármann þrott í gær með minnir mig 18 stigum :)
  • ógeðslega kalt úti
  • er að reyna að læra, er búin að slá nýtt met náði að vera samfleytt 2 tíma áðan að læra, hefur aldrei gerst áður :)
  • var í skýrn í gær, prinsessan var nefnd Guðrún Margrét Hólm Halldórsdóttir, þetta er stelpa halla frænda sem ekki vita.
  • það var ball á venus í gær, fór ekki,, er félagskítur.
  • ég og gísli fórum í pizzu í gær hjá nonna og hrefnu, og skvísunum þeirra tveimur
  • gísli er einn heima, ma og pa eru í róm
  • kristín lára kom í gær og við fengum okkur öllara, eða ég 2 og hún hvað held ég 6 hehe.. :)
  • leikur í kvöld, skallagrímur-grindavík.. ALLIR AÐ MÆTA Í FJÓSIÐ.
  • stelpurnar eiga að dansa í kvöld á leiknum þess vegna eiga allir að mæta svona korter í.. :) ná góðum sætum, það er víst ótrúlega flott múndering á stelpunum..
  • ég skal reyna að hlægja ekki stelpur, það þarf allavega mikinn kjark á að gera þetta..
  • sóley er búin að kaupa íbúð :) hrafnaklettur 6. í blokkunum í bjargslandi, mjög flott.... pabbi er á fullu að mála og ma og sóley og isabella fóru til rvk áðan að versla dót í íbúðina.. öfunda hana geggjað því mig langar svo að eiga mitt eigið húsnæði og sjá um mig sjálf.. voanandi gerist það sem fyrst..
  • nenni ekki að hugsa meira, ætla að halda áfram að borða pringles og reyna að skilja frönsku...

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 16:23:24 / sigga

Það styttist í jólin...

sælt veri fólkið, jæja það eru tvær vikur eftir af skólanum, jesús minn almáttugur og mér finnst ég ekki hafa verið að gera neitt þessa önn í skólanum, en svona er þetta víst..en við stelpurnar fórum að keppa á flúðum á föstudaginn síðasta, við unnum leikinn með 30 stigum, hefðum alveg getað staðið okkur miklu betur en sigur er sigur :) en ferðin já var mögun, hélt að ég myndi fá magasár þegar ég kom heim en svo var ekki, því ég var svo rosalega stressuð.. það var nefnilega ekki neitt rosalega gott veður, og ég fékk nokkur köst innra með mér á leiðinni.. þær voru einhvað óskup rólegar hjá mér stelpurnar, rósa, guðrún og íris, held samt að íris hafi verið svolítið stressuð :) en þetta var samt bara fín ferð, við nýttum ferðina og fórum og keyptum okkur skó og upphotunarboli og hettupeystu :) allar alveg eins :)
en ég er í óðal núna, ég og gunnfríður erum að fara að gera verkefni og þurfum að nota einhvað af þessum greyjum sem tilraunadýr :) en bless í bili

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 22:17:28 / sigga

Sunnudagur

 

Jæja þá er helgin búin, vá hvað þetta er fljótt að líða, en ég hreinlega man ekki hvort ég hafi gert einhvað merkilegt í síðustu viku, nema á miðvikudaginn síðasta þá fékk ég hringingu frá höbbu og bylgju, þær voru að fara til reykjavíkur með prinsessurnar sínar.. J ótrúlega gaman að sjá þær, mjög langt síðan ég sá þetta lið síðast.. en á föstudaginn var mímisferð J það var ótrúlega skemmtilegt, það koma myndir vonandi bráðlega inn á www.borgarbyggd.is/mimir en ég veit að það eru komnar einhverjar myndir inn á síðuna henna írisar gunnarsdóttir. Það er í linkunum hérna neðst til vinstri. En við semsagt byrjuðum á því að fara á körfuboltaleik, þar sem skallagrímur vann fjölni, eftir það fórum við á pizza hut að borða svo fórum við í keilu, en eins og í öllum svona ferðum þá þarf alltaf að vera einhvað sem fer útskeiðis J en það gerir ferðirnar bara skemmtilegar.

Jæja en svo í gær ákváðum við stelpurnar (lóa og heiðrun og ég) að fá okkkur öllara, og þær tóku mig upp í og við fórum einhvað á rúntin og ákváðum svo að fara á hvanneyri en fyrst ætluðum við að kíkja aðeins á strákana sem voru í partýi heima hjá svanberg og taka pissustopp, en þegar við komum þangað voru þeir að fara a hvanneyri, þannig við fórum bara öll í samfloti, gísli, svanberg, sölvi, eiríkur, valur og halli. Þetta var bara algjör snilld, ég sem ætlði að vera bara heima hjá mér og hafa það kósí, en sé svo ekki eftir því að hafa farið, því það var sko hlegið mikið.. halli fór alveg a kostum, jesjús minn hann var svo fullur, og það sem kom útur drengnum var ótrúlegt.

fór áðan í afmæli til Kristjáns, hann var 3 ára :) þetta er sonur jónu frænku :) ót´rulega stór og myndalegur drengur.. en við keyrðum þangað ég mamma, afi, sóley og isabella. eftir það fórum við til ömmu á akranes. þannig þetta var svolitil keyrsla en það er í góðu lagi

En jamm og jæja, ég og sóley ætlum að fara að leigja okkur mynd á VOD J og er svona að reyna að læra með því J en ég bið að heilsa ykkur í bili.. cheers

set hérna inn ótúlega krúttulega mynd af bellunni :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 13:08:14 / sigga

Þriðjudagur

ekkert mikið búið að gerast, skólinn byrjaði aftur í dag eftir miðannafrí :) alltaf gott að fá svona frí, en ég get sagt ykkur það að það var mjög freistandi að sleppa skólanum í morgun, það var svo KALT, bíllin hafi ekki einu sinni hitnað þegar ég kom í skólann í morgun, þannig þið getir bara ýmindað ykkur hvernig ég var á leiðinni á akranes í morgun, ég var alveg hoppandi og skoppandi í bílnum og söng rosalega hátt, allt til að halda mér hita :) hann gísli minn er ennþá veikur :( eða smá flökurt, en svo standa málin þannig að hann og fjölskylda eru flutt í nýja húsið :) ótrúlega flott hjá þeim, og svo var ég hjá gísla í nótt, hef ekki verið hjá honum síðustu daga því hann hefur verið með pestina, en allavega þegar ég kom heim til hans í gærkvöldi var kötturinn á miðju rúminu búinn að rétta úr sér alveg rosalega og tók liggur við allt rúmið, og ég reyndi að troða mér þarna og gísli færði hann einhvað, en með köttinn þá held ég að hann sé einhvað fúll út í mig, sár því ég er alltaf hjá gísla, því hann var vanur að vera dekraður af honum áður en ég kom í myndina, þá fékk altaf að sofa hjá honum og svona, og svo er ég með ofnæmi og einhvað þannig það hefur verið frekar lítið af þvi að hann sé hjá okkur en það kemur fyrir.. en svo var hann semsagt í nótt, og lét mig ekki í friði, held að ég hafi fengið að sofa í rúma 3 tíma eða einvhað, hann var alltaf að klóra í mig :( ég var sko mjög hrædd :( en nei gísli settti hann ekki út hann sagði bara ,,hættu þessu" og fór svo bara að sofa aftur meðan ég skalf við hliðina á honum, en þetta allavega gerðist nokkrum sinnum :( þannig ég talaði við gísla áðan í síman og ég sagði við hann auðvitað í djóki, þú verður að velja milli mín og kattarins, og auðvitað valdi hann köttinn :) ég er svo góð að segja sögur :) en nó komið í bili.. bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 17:38:01 / sigga

Sunnudagur

það er einhvað í loftinu, shitt ég er alveg búin á því , þetta er búin að vera svo mikill letidagur að hálfa væri nóg.... ég bara geyspa og geyspa, en það er sunnudagur, það er leyfilegt, reyndar á það ekki að vera það því það er svo mikið að gera hjá mér, eða mikið sem ég á eftir að gera í skólanum og öðru.

en við stelpurnar vorum að keppa í gær á móti fjölni, alveg hörkuleikur þar á ferð, en þetta var ótrúlega jafn leikur þar til í lokinn þegar það var 1-2 min eftir, eða minna man ekki alveg þá komust þær yfir okkur og unnu okkur með þremur stigum.. :( en við vinnum þær bara næst, en það var slatti af fólki sem kom að horfa á okkur, en næsti leikur er 10 minnir mig á flúðum..

en karlarir eru að spila í kvöld á móti hamar/selfoss og sögur segja að birdinn verður að spila með þeim í kvöld, en það kemur bara í ljós..

jæja ætla að fara að með sólz að versla.

bæ í bili

já og habba og bylgja lýst vel á það að þið hringið í mig þegar þið eruð í bgn og þið ætlið ekki að láta mig gleyma þessu umrædda fylliríi, hehe hugsa oft um þetta og bara trúi ekki að saklausa sigga hafi látið svona, en það er bara gaman af þessu, gott að það er hægt að hlægja af manni :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 11:40:59 / sigga

Föstudagur

jæja fólk, það er komið miðannafrí í skólanum, sem þýðir að það er frí í skólanum í dag og á mánudaginn :) það er svosem fínt, en kennararnir segja að maður eigi bara að taka það rólega og einhvað, en það er samt alltaf mest að gera í miðannafríum, þá á mar að vera duglegur að læra, og klára það sem maður er búinn með, en í gær fór ég á fund með tómstundarráði í borgarbyggð, við fórum ég svanberg og skúli, þetta var alveg hörkufundur :) skúli stóð sig með prýði og ég efast um að þetta hafi verið eins ef að hann hafi ekki komið með okkur.. takk skúli.... það var semsagt verið að ræða hvað við erum að gera í mími og einhvað, því við erum að reyna að berjast fyrir að fá allt húsið þar sem mímir er, semsagt líka þar sem fjöliðjan er, og það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessu.. en jams fartölvan mín er í viðgerð, hún átti að koma úr viðgerð í dag en það er einhver seinkun en ég vona að hún komi því það eru verkefni sem eru í henni sem ég á að skila í dag :( og dagrún, leikurinn er á morgun, hann byrjar klukkan 16.00 og erum við að keppa á móti fjölni :) mæli með því að fólk mætir á völlinn og hvetji okkur til sigurs jeyyyyy :) ÁFRAM SKALLAGRÍMUR, kallarnir voru að keppa við KR í gær og mig minnir að þeir hafi unnið með 7 stigum, flott hjá þeim. svo er diskó í kvöld hjá krökkunum í óðal :) alltaf gaman af því, og erum ég og arnar að vinna á því, kom spurning frá arnari í gær, ,,er í lagi að reyna við stelpurnar á diskótekinu" ég veit hann var að djóka en þetta er bara arnar hehe, ótrúlegur í kjaftinum, fólk ekki taka hann bókstaflega því hann á alveg frábæra kærustu :) en jæja ég huga að ég ætla að fara að halda áfram að læra, bið að heilsa ykkur . Cía

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 17:34:22 / sigga

Miðvikudagur

jæja krakkar mínir, nóg að gera í skólanum, nóg að gera í mími, nóg að gera alls staðar :) alltaf gaman þegar það er nóg að gera. ég nenni eiginlega ekki að skrifa neitt hérna, mímir opinn í kvöld. rockstar kvöld í óðal í kvöld :) spennandi atriði þar á ferð.. æj ég kem með einhvað blogg á mrgn nenni þessu ekki..

hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11